Hristov farinn frá Víkingum

Todor Hristov er á förum frá Víkingum.
Todor Hristov er á förum frá Víkingum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Todor Hristov, búlgarskur kantmaður Víkinga er farinn frá félaginu en þetta staðfesti Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkinga, í kvöld.

Hristov spilaði átta leiki með Víkingum og lék sinn fyrsta leik fyrir Víking gegn Fram í 2. umferð Pepsi-deildarinnar. Þar spilaði Hristov vel en hann náði hins vegar ekki að fylgja þeirri frammistöðu eftir og er hann á heimleið til Búlgaríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert