Oliver til liðs við Breiðablik

Oliver Sigurjónsson í leik með 19 ára landsliði Íslands.
Oliver Sigurjónsson í leik með 19 ára landsliði Íslands. mbl.is/Golli

Knattspyrnumaðurinn Oliver Sigurjónsson er genginn til liðs við Breiðablik eftir að hafa spilað með unglinga- og varaliði AGF í Danmörku undanfarin ár.

Oliver, sem er 19 ára gamall miðjumaður, skýrði frá þessu á Twitter rétt í þessu. Hann er 19 ára gamall og hefur spilað einn leik með 21-árs landsliði Íslands og samtals 41 leik með yngri landsliðunum en hann hefur verið fyrirliði þeirra beggja.

Oliver lék með  Breiðabliki í yngri flokkunum en gekk til liðs við AGF þegar hann var 16 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert