Þorsteinn Már Ragnarsson framherji úr KR hefur verið lánaður til Víkings í Ólafsvík út þetta tímabil en frá skiptunum hefur verið gengið og Þorsteinn er löglegur með Ólafsvíkingum annað kvöld þegar þeir mæta Selfyssingum í 1. deildinni.
Þorsteinn hefur komið við sögu í níu af tólf leikjum KR í Pepsi-deildinni á þessu ári en aðeins verið tvisvar í byrjunarliðinu. Þetta er þriðja tímabil hans með Vesturbæjarliðinu en Þorsteinn lék áður með Ólafsvíkingum.