Stjarnan og FH spila næsta fimmtudag

Stjörnumenn taka á móti Lech Poznan næsta fimmtudag.
Stjörnumenn taka á móti Lech Poznan næsta fimmtudag. mbl.is/Eva Björk

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, er búið að staðfesta leikdaga og leiktíma hjá Stjörnunni og FH í leikjunum í 3. umferð Evrópudeildar UEFA næstu tvær vikur.

Næsta fimmtudag, 31. júlí, leika FH-ingar við Elfsborg í Borås í Svíþjóð klukkan 18 að íslenskum tíma, eða klukkan 20 að staðartíma.

Sama dag tekur Stjarnan á móti Lech Poznan frá Póllandi klukkan 18.30 á Samsungvellinum í Garðabæ.

Fimmtudaginn 7. ágúst verða seinni leikir liðanna. Þá mætast Lech og Stjarnan í Poznan í Póllandi klukkan 17 að íslenskum tíma, eða 19 að staðartíma.

FH tekur þá á móti Elfsborg en tímasetning á leiknum í Kaplakrika er ekki staðfest.

KSÍ hefur frestað leikjum liðanna í Pepsi-deild karla sem fram áttu að fara miðvikudaginn 6. ágúst. FH átti þá að taka á móti KR og Stjarnan átti að heimsækja Víking. Ekki eru komnir staðfestir leikdagar fyrir þessa leiki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert