Búlgararnir komnir með leikheimild hjá Víkingi

Víkingar hafa fengið liðsstyrk.
Víkingar hafa fengið liðsstyrk. mbl.is/Styrmir Kári

Knattspyrnulið Víkings R. í Pepsi-deild karla í knattspyrnu er komið með leikheimild fyrir búlgörsku leikmennina Ilyan Garov og Ventsislav Ivanov sem hafa verið til skoðunar hjá félaginu. Þeir ættu því að vera gjaldgengir með Víkingi gegn Keflavík í undanúrslitum bikarkeppninnar annað kvöld.

Ivanov leikur sem varnarmaður og er 32 ára en Garov er þrítugur framherji. Þrír leikmenn eru á förum frá Víkingi til náms erlendis, þeir Halldór Smári Sigurðsson, Tómas Guðmundsson og Arnþór Ingi Kristinsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert