Rúnar: Menn ættu frekar að styðja sitt lið

„Ég er mjög ánægður, liðið spilaði frábæran leik,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR sem er kominn með lið sitt í úrslitaleik bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 5:2 sigur á ÍBV í Eyjum í kvöld. 

„Það var góður agi í fyrri hálfleik, við vorum mjög sterkir varnarlega og gáfum fá færi en nýttum okkar sénsa ágætlega held ég,“ sagði Rúnar. Hann var ekki ánægður með ummæli stuðningsmanna ÍBV í garð Kjartans Henry Finnbogasonar í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert