Þórarinn Ingi: Verðum að taka sénsinn

Þórarinn Ingi Valdimarsson, miðjumaðurinn öflugi í liði ÍBV var að spila sinn annan leik fyrir liðið í kvöld eftir heimkomuna. Hann var að vonum ekki sáttur með 2:5 tap fyrir KR í bikarnum á heimavelli. 

„Mér fannst við spila frábærlega í fyrri hálfleik. Við vorum alveg með þá og fengum færi sem við nýttum ekki. En það sem við þurfum að læra er að taka sénsinn þegar við erum með „mómentið“ með okkur. Ef þú skorar, þá gerir það vinnuna miklu auðveldari fyrir okkur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert