Gary Martin tryggði KR-ingum sigurinn

KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason og Fjölnismaðurinn Ragnar Leósson á KR-vellinum …
KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason og Fjölnismaðurinn Ragnar Leósson á KR-vellinum í kvöld. mbl.is/Eggert

KR-ingar höfðu betur gegn nýliðum Fjölnis, 1:0, í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld en leik liðanna var að ljúka á KR-vellinum.

Sigurmarkið skoraði Gary Martin og var það sjötta mark hans í Pepsi-deildinni á leiktíðinni. KR-ingar halda því enn í vonina um að blanda sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Bikarmeistararnir eru með 29 stig og eru 6 stigum á eftir toppliðum FH og Stjörnunnar.

Nýliðar Fjölnis eru áfram í 10. sæti deildarinnar með 15 stig og fram undan er hörð barátta Grafarvogsliðsins um að halda sæti sínu í deildinni.

KR 1:0 Fjölnir opna loka
90. mín. Leik lokið Leik lokið með 1:0 sigri KR.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert