Heimir: Á bekkinn ef menn leggja sig ekki fram

„Menn fara á bekkinn ef þeir leggja sig ekki fram á æfingum og í leikjum,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH-inga eftir 2:0 sigur á Keflavík í Pepsi deild karla í Kaplakrika í kvöld.

Heimr svaraði þar spurningu um samkeppnina í liðinu og sagði hana mikla. Hann sagðist ángæður með leik liðsins í kvöld. „Keflavík hefur byrjað vel í leikjum sínum en í kvöld byrjuðum við vel og náðum að stöðva skyndisóknir þeirra og halda pressu á þeim,“ sagði Heimir sem vildi engu spá um framhaldið í toppbaráttunni. „Stjarnan vinnur alla sína leiki og við verðum því að gera það líka ef við ætlum að hanga í þeim“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert