FH átti ekki í nokkrum vandræðum með að leggja Keflvíkinga í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Sjálfsmark í fyrri hálfleik og mark frá Steven Lennon tryggðu sigurinn sem var óþarflega lítill miðað við gang leiksins.
FH-ingar áttu engan stjörnuleik í gær, en leikur liðsins dugði til að fá þrjú stig og koma liðinu á nýjan leik í efsta sæti deildarinnar með 35 stig, eða jafnmörg og Stjarnan og nokkuð ljóst að það stefnir í mikið einvígi milli liðanna.
„Ég veit ekki hvernig framhaldið verður, en Stjörnumenn vinna alla sína leiki þannig að við verðum að gera hið sama ef við ætlum að hanga í þeim,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir sigurinn í gær.
Sjá umfjöllun um leik FH og Keflavíkur, sem og KR og Fjölnis, í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.