Íslenski boltinn í beinni - sunnudagur

KR og Stjarnan eigast við í stórleik umferðarinnar.
KR og Stjarnan eigast við í stórleik umferðarinnar. mbl.is/Ómar

Sex leikir eru á dagskrá í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í dag þegar 18. umferð deildarinnar er leikin í heilu lagi. Fylgst er með gangi mála í ÍSLENSKI BOLT­INN Í BEINNI hér á mbl.is

KR mætir Stjörnunni í stórleik umferðarinnar, og getur með sigri blandað sér á ný í toppbaráttuna. Víkingur mætir Þór á Akureyri sem þarf nauðsynlega á sigri að halda ætli norðanmenn sér að halda sæti sínu í deildinni. Þá bítast Valur og ÍBV um mögulegt Evrópusæti, en dagskrána má sjá hér að neðan.

Leikir dagsins:
17.00 Valur - ÍBV
18.00 Þór - Víkingur
18.00 Breiðablik - Fylkir
18.00 FH - Fjölnir
18.00 Keflavík - Fram
18.00 KR - Stjarnan

Smellið á ÍSLENSKI BOLT­INN Í BEINNI til að opna beinu lýsinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert