Nú er orðið ljóst að Ísland og Danmörk eigast við 10. og 14. október í umspili um sæti í úrslitakeppni Evrópumóts U21 ára landsliða í knattspyrnu sem fram fer í Tékklandi á næsta ári.
Fyrri leikurinn fer fram í Álaborg föstudaginn 10. október og síðari leikurinn verður á Laugardalsvellinum þriðjudaginn 14. október klukkan 16.