Sá markahæsti úrskurðaður í leikbann

Jonathan Glenn var úrskurður í eins leiks bann í kvöld.
Jonathan Glenn var úrskurður í eins leiks bann í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Sjö leikmenn úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu voru úrskurðaðir í leikbönn á fundi Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í kvöld en fundurinn hófst ekki fyrr en að loknum leik Fjölnis og Stjörnunnar sem áttust við á Fjölnisvelli í kvöld.

Leikmennirnir sem voru úrskurðaðir í eins leiks bann og spila ekki með liðum sínum á sunnudaginn eru:

Davíð Þór Viðarsson, FH
Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni
Jonathan Glenn, ÍBV
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV
Aron Bjarki Jósepsson, KR
Pablo Punyed, Stjörnunni
Henry Monaghan, Víkingi

Þeir Jonathan Glenn, markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar, og Þórarinn Ingi missa af leik ÍBV á móti Keflavík. Davíð Þór missir af leik FH á móti Val. Gunnar Már verður fjarri góðu gamni í liði Fjölnis í leiknum við Fylki. Aron Bjarki missir af leik KR gegn Víkingi þar sem Monaghan verður heldur ekki með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert