Búið að selja 5.000 miða á úrslitaleikinn

FH og Stjarnan mætast í úrslitaleik á laugardaginn.
FH og Stjarnan mætast í úrslitaleik á laugardaginn. mbl.is/Ómar Óskarsson

FH-ingar sendu frá sér fréttatilkynningu í kvöld og þar kemur fram að búið er að selja 5.000 miða á leik FH og Stjörnunnar en liðin mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn á Kaplakrika klukkan 16 á laugardaginn.

Í fréttatilkynningu segir jafnframt að almenn forsala muni hefjast í Kaplakrika klukkan 9 í fyrramálið en FH-ingar árétta að enginn mun komast inn á leikvanginn án aðgöngumiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert