Páll er hættur með Þórsara

Páll Viðar Gíslason
Páll Viðar Gíslason mbl.is/Ómar

Páll Viðar Gíslason er hættur sem þjálfari knattspyrnuliðs Þórs á Akureyri eftir að hafa stýrt því í hálft fimmta ár. Þetta var tilkynnt á lokahófi félagsins í kvöld.

Hann tók við sem þjálfari af Lárusi Orra Sigurðssyni í júní 2010 og á þeim tíma hafa Þórsarar tvisvar unnið sig upp í úrvalsdeildina, tvisvar fallið og leikið til úrslita í bikarkeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert