Sögulegur sigur á bronsliði HM

Öðru marki Gylfa Sigurðssonar á 42. mínútu var fagnað.
Öðru marki Gylfa Sigurðssonar á 42. mínútu var fagnað. mbl.is/Ómar

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann einn sinn stærsta, ef ekki þann alstærsta, sigur frá upphafi þegar liðið skellti Hollendingum, bronsliði síðasta HM, á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM í knattspyrnu, 2:0.

Ísland er því með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og hefur enn ekki fengið á sig mark, en skorað átta. Liðið er jafnt Tékklandi á toppi A-riðils, með 9 stig, en næsta lið er Holland með 3 stig. Ísland mætir næst Tékklandi í Prag þann 16. nóvember í síðasta leik ársins.

Ísland fékk algjöra draumabyrjun en Gylfi Þór Sigurðsson kom liðinu yfir strax á 10. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Birkir Bjarnason nældi í vítaspyrnuna af miklu harðfylgi en hann komst í veg fyrir sendingu úti við hornfána, og náði svo boltanum rétt á undan Stefan de Vrij sem braut á Birki innan teigs.

Hið ógnarsterka lið Hollands var mikið með boltann í leiknum en gekk ekki vel að finna glufur á vörn Íslands. Það var helst um miðjan fyrri hálfleik þegar Robin van Persie komst í mjög gott færi en Hannes Þór Halldórsson varði frá honum, og skömmu síðar þegar Arjen Robben átti skalla framhjá úr dauðafæri.

Undir lok fyrri hálfleiks kom seinna markið þegar Gylfi skoraði með föstu skoti upp í þaknetið úr teignum, í kjölfarið á hornspyrnu Emils Hallfreðssonar. Það var lengi vel óvíst hvort Gylfi gæti spilað leikinn vegna meiðsla en hann var magnaður eins og í öðrum leikjum keppninnar til þessa.

Ari Freyr Skúlason varð að fara af leikvelli og gat ekki spilað seinni hálfleik, en Birkir Már Sævarsson kom inná í hans stað og stóð vel fyrir sínu. Hollendingar reyndu að fjölga í sókn sinni en gekk ekkert að skapa sér nein dauðafæri. Ísland varðist vel og átti hættulegar skyndisóknir sem þó skiluðu ekki marki að þessu sinni.

Staða Íslands í undankeppninni er orðin afskaplega vænleg en aðeins 3 umferðum af 10 er lokið. Næsti leikur er eins og fyrr segir gegn Tékkum eftir rúman mánuð. Þetta var í fyrsta sinn í 11 tilraunum sem Íslandi tekst að vinna Holland.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is og viðtöl koma inn síðar í kvöld. Fjallað verður ítarlega um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

Gylfi Sigurðsson tekur vítaspyrnuna sem íslenska liðinu yfir, 1:0, á …
Gylfi Sigurðsson tekur vítaspyrnuna sem íslenska liðinu yfir, 1:0, á 10. mínútu. mbl.is/Ómar
Kolbeinn Sigþórsson í kapphlaupi við hollensku varnarmennina á Laugardalsvelli.
Kolbeinn Sigþórsson í kapphlaupi við hollensku varnarmennina á Laugardalsvelli. mbl.is/Ómar
Arjen Robben og Helgi Valur Daníelsson
Arjen Robben og Helgi Valur Daníelsson mbl.is/Golli
Öðru marki Gylfa Sigurðssonar fagnað.
Öðru marki Gylfa Sigurðssonar fagnað. mbl.is/Ómar
Jón Daði Böðvarsson á fullri ferð.
Jón Daði Böðvarsson á fullri ferð. mbl.is/Ómar
Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson í baráttu við hollensku …
Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson í baráttu við hollensku vörnina. mbl.is/ Ómar
Jón Daði Böðvarsson og Theódór Elmar Bjarnason.
Jón Daði Böðvarsson og Theódór Elmar Bjarnason. mbl.is/Ómar
Ísland 2:0 Holland opna loka
90. mín. Arjen Robben (Holland) á skot framhjá Robben á sínum uppáhaldsstað, hægra megin í teignum, en skotið fór framhjá.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert