Finnur Orri Margeirsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við FH en þetta kemur fram á vef stuðningsmanna félagsins, fhingar.net.
Finnur er 23 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril með Breiðabliki en hann hefur spilað alls 163 leiki fyrir félagið. Þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðinum en Finnur hefur verið fyrirliði Blikanna undanfarin ár.