Jói Kalli og Ingimundur til Fylkis

Ingimundur Níels Óskarsson er kominn aftur í Árbæinn.
Ingimundur Níels Óskarsson er kominn aftur í Árbæinn. mbl.is/Ómar

Fylkismenn voru að fá góðan liðsstyrk fyrir átökin á næsta tímabili en þeir Jóhannes Karl Guðjónsson og Ingimundur Níels Óskarsson eru gengnir til liðs við Árbæjarliðið.

Jóhannes Karl skrifaði undir eins árs samning en hann lék með Fram á síðustu leiktíð. Ingimundur Níels gerði þriggja ára samning en hann hefur leikið með FH-ingum undanfarin tvö ár en var þar áður í herbúðum Fylkis frá 2008 til 2012.

Þá framlengdi Tómas Joð Þorsteinsson samning sinn við Fylkismenn um tvö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert