Ólína til liðs við Fylki

Ólína G. Viðarsdóttir á landsliðsæfingu.
Ólína G. Viðarsdóttir á landsliðsæfingu. mbl.is/Styrmir Kári

Ólína G. Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu til margra ára, gengur í dag til liðs við Fylki samkvæmt öruggum heimildum mbl.is.

Ólína hefur leikið með Val í hálft annað ár eftir að hún kom heim úr atvinnumennsku í Englandi og Svíþjóð, þar sem hún spilaði með Chelsea og Örebro. Þar á undan lék hún með KR,  Breiðabliki og Grindavík.

Hún er með reyndustu landsliðskonum landsins og á að baki 70 A-landsleiki en tilkynnti í haust að hún hefði ákveðið að draga sig í hlé frá landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert