KR og FH mætast í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í vor, en dregið var um töfluröð á formanna- og framkvæmdastjórafundi hjá KSÍ í dag.
Íslandsmeistarar Stjörnunnar fara upp á Skaga og mæta nýliðum ÍA og í Pepsi-deild kvenna tekur meistaralið Stjörnunnar á móti nýliðum KR.
Annars eru leikir fyrstu umferðar hjá körlunum þannig að Valur fær Leikni Reykjavík í heimsókn, Fjölir tekur á móti ÍBV og Fylkir fær Breiðablik í heimsókn.
Hjá konunum er fyrsta umferð þannig að Blikar fá Þrótt úr Reykjavík í heimsókn, Þór/KA tekur á móti ÍBV, Fylkir fær Selfyssinga í heimsókn og Afturelding fer á Hlíðarenda og leikur við Val.
Lesa má um niðurröðunina í Pepsi-deild karla með því að smella hér.
Lesa má um niðurröðunina í Pepsi-deild kvenna með því að smella hér.
Lesa má um niðurröðunina í 1. deild karla með því að smella hér.
Lesa má um niðurröðunina í 2. deild karla með því að smella hér.