Brynjar Gauti fer í Garðabæinn

Brynjar Gauti Guðjónsson
Brynjar Gauti Guðjónsson mbl.is/Eva Björk

Miðvörðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson hefur ákveðið að leika með Íslandsmeisturum Stjörnunnar á næstu leiktíð, en hann hefur verð í herbúðum Eyjamanna síðustu árin.

Frá þessu er greint á Eyjamenn.com og þar kemur fram að miðvörðurinn hafi gengið til liðs við ÍBV frá Víkingi í Ólafsvík í febrúar árið 2011. Nú mun leiðir hins vegar skilja því Brynjar Gauti hefur náð samkomulagi við Stjörnuna og tilkynnti hann leikmönnum og forráðamönnum ÍBV ávörðun sína í gær, en ÍBV hafði áhuga á að framlengja samning hans.

Stuðningsmenn ÍBV þakka Brynjari fyrir frábær ár með félaginu og bjóða hann velkominn aftur „þegar þú ert tilbúinn að vinna með okkur titilinn“, segir á eyjamenn.com.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert