Siggi Raggi á leið til Ástralíu?

Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrði ÍBV í Pepsi-deild karla í sumar …
Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrði ÍBV í Pepsi-deild karla í sumar en ákvað svo að hætta með liðið. mbl.is/Styrmir Kári

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna og þjálfari karlaliðs ÍBV, gæti verið á förum til Ástralíu til að starfa sem tæknilegur ráðgjafi fyrir ástralska knattspyrnusambandið.

Þetta segist vefmiðillinn fótbolti.net hafa eftir heimildum. Sigurður Ragnar hefur áður staðfest að hafa átt í viðræðum við erlent knattspyrnusamband.

Fleiri kostir eru í boði fyrir Sigurð Ragnar en Rúnar Kristinsson, nýráðinn þjálfari Lilleström í Noregi, vill fá hann sem aðstoðarþjálfara sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert