Leikur númer tvö hjá U23-landsliði kvenna

Elín Metta Jensen skoraði í eina leik U23-landsliðsins til þessa.
Elín Metta Jensen skoraði í eina leik U23-landsliðsins til þessa. mbl.is/Ómar

U23-landslið kvenna í knattspyrnu mun þann 14. janúar mæta A-landsliði Póllands í vináttulandsleik í Kórnum. Þjóðirnar mætast svo aftur í Póllandi árið 2016.

U23-landsliðið lék sinn fyrsta og eina leik til þessa árið 2012 þegar það gerði 2:2-jafntefli við Skotland ytra.

Skortur hefur verið á verkefnum fyrir leikmenn sem eru orðnir of gamlir fyrir U19-landsliðið en hafa ekki fest sig í sessi í A-landsliðinu. U21-landslið Íslands lék síðast sumarið 2006.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert