Ólafur á leiðinni til Noregs?

Ólafur Karl Finsen í baráttu við Nemanja Vidic.
Ólafur Karl Finsen í baráttu við Nemanja Vidic. mbl.is/Árni Sæberg

Ólafur Karl Finsen, kantmaður úr Stjörnunni, gæti verið á leið í norsku knattspyrnuna en hann fer á morgun til reynslu hjá úrvalsdeildarfélaginu Haugesund. Þetta kemur fram á fotbolti.net.

Ólafur lék á dögunum fyrstu tvo A-landsleiki sína þegar Ísland mætti Kanada. Hann var í stóru hlutverki hjá Stjörnunni á síðasta ári, skoraði markið sem tryggði liðinu Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni og gerði 11 mörk í 21 leik í deildinni. Þá skoraði hann 5 mörk í ævintýralegri framgöngu Garðabæjarliðsins í forkeppni Evrópudeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert