Víkingar eiga möguleika

Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic, til hægri, þjálfa lið Víkings.
Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic, til hægri, þjálfa lið Víkings. mbl.is/Ómar

Víkingar geta enn komist í undanúrslit Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu eftir sigur á Þrótturum, 1:0, í Egilshöllinni í kvöld.

Stefán Þór Pálsson skoraði sigurmarkið í seinni hálfleiknum. Þegar tveimur umferðum er lokið í riðlinum er Leiknir R. kominn áfram með 8 stig. Valur er með 6, Víkingur 4, ÍR 3 og Þróttur eitt stig.

Víkingar mæta ÍR og Valur mætir Þrótti í lokaumferðinni en Valsmönnum nægir væntanlega jafntefli í sínum leik til að halda sér fyrir ofan Víkinga vegna mjög hagstæðrar markatölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert