Blikar skelltu meisturunum

Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik.
Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik. mbl.is/Ómar

Breiðablik sigraði Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar, 3:1, í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu þegar liðin mættust í Fífunni í dag en þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu.

Fanndís Friðriksdóttir kom Blikum yfir rétt fyrir hlé og bætti við öðru marki á 58. mínútu. Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði þriðja markið á 74. mínútu, 3:0, en Rúna Sif Stefánsdóttir svaraði fyrir Stjörnuna þremur mínútum síðar.

Þór/KA vann Selfoss, 3:1, í Akraneshöllinni. Lillý Rut Hlynsdóttir, Oddný Karólína Hafsteinsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir skoruðu fyrir Akureyrarliðið en Erna Guðjónsdóttir gerði mark Selfyssinga.

Fylkir vann ÍBV, 4:2, í fyrsta leik A-deildarinnar í gærkvöld en með þessum leikjum lauk fyrstu umferð keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert