Stórsigur Fylkismanna

Albert Brynjar Ingason í leik með Fylki síðasta sumar.
Albert Brynjar Ingason í leik með Fylki síðasta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fylkismenn unnu stórsigur á BÍ/Bolungarvík, 5:0, í viðureign liðanna í A-deild Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu í Egilshöllinni í dag.

Albert Brynjar Ingason og Andrés Már Jóhannesson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Fylkismenn og Kjartan Ágúst Breiðdal skoraði eitt. Markaskorararnir eru fengnir á fotbolti.net.

Fylkismenn hafa 7 stig eftir þrjá leiki en Djúpmenn eru án stiga eftir þrjá leiki og eru með markatöluna, 0:12.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert