Eiður, Jóhann og Birkir í byrjunarliðinu

Íslenska landsliðið á lokaæfingunni í Astana Arena í gær.
Íslenska landsliðið á lokaæfingunni í Astana Arena í gær. mbl.is/Víðir Sigurðsson

Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfarar karla í knattspyrnu, gera þrjár breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Kasakstan á Astana Arena í dag.

Eiður Smári Guðjohnsen, Jóhann Berg Guðmundsson og Birkir Már Sævarsson koma í staðinn fyrir Jón Daða Böðvarsson, Emil Hallfreðsson og Theódór Elmar Bjarnason en Elmar er ekki með vegna meiðsla.

Liðið er þannig skipað:

Mark:
Hannes Þór Halldórsson

Vörn:
Birkir Már Sævarsson
Kári Árnason
Ragnar Sigurðsson
Ari Freyr Skúlason

Miðja:
Jóhann Berg Guðmundsson
Aron Einar Gunnarsson fyrirliði
Gylfi Þór Sigurðsson
Birkir Bjarnason

Sókn:
Kolbeinn Sigþórsson
Eiður Smári Guðjohnsen

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert