Króati til Fylkismanna

Ásmundur Arnarsson er búinn að bæta króatískum varnarmanni í sinn …
Ásmundur Arnarsson er búinn að bæta króatískum varnarmanni í sinn hóp. mbl.is/Golli

Tonci Radovnikovic, króatískur knattspyrnumaður, er genginn til liðs við Fylkismenn og er kominn með leikheimild með þeim frá og með morgundeginum.

Radovnikovic er 26 ára gamall miðvörður sem hefur hingað til leikið í heimalandi sínu og undanfarin fjögur ár með liði NK Solin sem hefur lengst af spilað í næstefstu deild en féll þaðan í fyrra. Hann var til reynslu hjá Fylkismönnum og æfði m.a. með þeim hér á landi í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert