Andri Rafn samdi til 2018

Andri Rafn Yeoman og Arnar Grétarsson þjálfari handsala samninginn.
Andri Rafn Yeoman og Arnar Grétarsson þjálfari handsala samninginn. Ljósmynd/blikar.is

Miðjumaðurinn knái Andri Rafn Yeoman skrifaði um helgina undir nýjan samning til þriggja ára við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Andri Rafn, sem er nýorðinn 23 ára gamall, á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann verður væntanlega í stóru hlutverki hjá Breiðabliki í ár en hann hefur leikið 175 leiki með meistaraflokki, þann fyrsta árið 2009.

Breiðablik leikur sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni í ár þegar liðið mætir Fylki í Árbæ á fimmtudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert