Markið hjá Telmu (myndskeið)

Telma Hjaltalín Þrastardóttir og Rakel Hönnudóttir, Breiðabliki, á í höggi …
Telma Hjaltalín Þrastardóttir og Rakel Hönnudóttir, Breiðabliki, á í höggi við Ásgerði Stefaníu Baldursdóttur, Stjörnunni, í leiknum í kvöld. Árni Sæberg

Telma Hjaltalín Þrast­ar­dótt­ir tryggði Breiðabliki langþráðan sigur á Stjörnunni í kvöld í stórleik umferðarinnar í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu en lokatölur urðu 1:0.

Markið kom eftir frábæran undirbúning Fanndísar Friðriksdóttur sem tók á rás upp völlinn frá miðjum eigin vallarhelmingi, náði góðri fyrirgjöf á Telmu sem kláraði færið vel en markið kom á 42. mínútu leiksins.

Smelltu hér til þess að sjá markið.

Ítarlega umfjöllun mbl.is um leikinn má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert