„Var búinn að fá mér nokkra kalda“

Tryggvi Guðmundsson.
Tryggvi Guðmundsson. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er enginn annar en ég sjálfur sem kem mér í þessa stöðu. Ég gerði mistök á laugardaginn í aðdraganda æfingarinnar sem var síðasta æfing fyrir leik,“ sagði Tryggvi í samtali við mbl.is en eins og fram hefur komið hefur honum verið vikið frá störfum sem aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu.

„Ég mætti undir áhrifum áfengis á æfinguna. Ég var búinn að fá mér nokkra kalda sem ég átti auðvitað alls ekki að gera. Ég hélt að ég myndi komast upp með þetta en auðvitað gerði ég það ekki. Þetta voru mistök sem ber að refsa fyrir. Í sameiningu komumst ég og stjórn knattspyrnudeildar ÍBV að þessari niðurstöðu í mesta bróðerni. Ég veit alveg upp á mig sökina,“ sagði Tryggvi.

Spurður hvað taki við hjá honum sagði Tryggvi:

„Það er óljóst en fyrst og fremst þarf ég að vinna í sjálfum mér. Ég á eftir að skoða það hvort ég fer í meðferð en þetta snýst fyrst og fremst um það að hætta að vera svona góður við sjálfan sig og fara að fullorðnast,“ sagði Tryggvi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert