„Drífðu þig í meðferð“

Tryggvi Guðmundsson
Tryggvi Guðmundsson mbl.is/Árni Sæberg

„Mér þykir vænt um þennan karl. Drífðu þig í meðferð. Þú verður sterkari og betri maður,“ sagði Arnar Gunnlaugsson einn af sérfræðingum Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport í kvöld.

Arnar var þarna að ræða um Tryggva Guðmundsson en eins og fram kom í fréttum í dag þá var Tryggva vikið frá störfum sem aðstoðarþjálfari ÍBV eftir að hann varð uppvís að því að mæta undir áhrifum áfengis á æfingu ÍBV-liðsins daginn fyrir leikinn gegn Breiðabliki.

Sjá viðtal við Tryggva Guðmundsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert