Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, var gríðarlega svekktur eftir að Hafnarfjarðarliðið tapaði 2:1 gegn KR í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í kvöld. FH er þar með úr leik í bikarnum þetta árið. „Þetta var jafn leikur sem datt með þeim. Það er ógeðslega svekkjandi en er það ekki alltaf þannig að betra liðið vinnur,“ sagði Davíð í samtali við mbl.is eftir leik.
„Þetta er náttúrulega ömurlegt. Við ætluðum okkur alla leið í bikarnum í ár og það er ógeðslega leiðinlegt að detta út núna.“ Davíð er sammála blaðamanni að FH-ingar hafi fengið færi til að skora fleiri mörk. „Við fengum fullt af færum, í stöðunni 0:0, 1:0, 1:1 og 2:1 og auðvitað hefðum við átt að skora fleiri mörk en Stefán Logi varði nokkrum sinnum vel og við vorum ekki alveg með á nótunum á köflum og því fór sem fór.“
FH leikur síðari leik sinn í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA á fimmtudaginn gegn SJK Seinäjoki í Kaplakrika. Staðan eftir fyrri leikinn er vænleg, en FH vann 1:0 í Finnlandi. „Við þurfum að drulla okkur áfram í þeirri keppni, það er alveg á hreinu. Við viljum spila sem flesta leiki og það er mjög svekkjandi að hafa klúðrað þessu.“