Guðjohnsen í hópi HK í kvöld

Sveinn Aron Guðjohnsen í leik með CF Gava á Spáni.
Sveinn Aron Guðjohnsen í leik með CF Gava á Spáni. Twitter

Sveinn Aron Guðjohnsen, sonur Eiðs Smára landsliðs- og atvinnumanns í knattspyrnu, er í fyrsta sinn í meistaraflokkshópi HK í 1. deildinni í kvöld en Kópavogsliðið tekur á móti Fjarðabyggð í Kórnum klukkan 19.15.

Sveinn Aron, sem er sautján ára gamall, hefur leikið með HK í yngri flokkunum og er á yngsta ári í 2. flokki félagsins. Hann á að baki níu leiki með U17 ára landsliði Íslands og hefur skorað eitt mark fyrir það. Hann er meðal varamanna hjá Kópavogsliðinu í kvöld en fjórir af sjö varamönnum liðsins í leiknum eru fæddir 1998.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert