Fylkir lánar Stefán Ragnar í ÍBV

Stefán Ragnar í leik með Fylki
Stefán Ragnar í leik með Fylki Eggert Jóhannesson

Stefán Ragnar Guðlaugsson, leikmaður Fylkis í knattspyrnunni, er genginn til liðs við ÍBV á láni út tímabilið.

Stefán, sem er 24 ára gamall varnarmaður, kom til Fylkis frá Val fyrir síðasta tímabil, en hann hefur leikið 29 leiki með Fylki í efstu deild og gert 2 mörk.

Hann fékk í dag félagaskipti yfir ÍBV, en hann mun leika með Eyjamönnum út tímabilið áður en hann snýr aftur í Fylki.

Hann fær þó ekki leikheimild fyrr en á morgun og má því ekki vera í hóp gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert