Hólmbert og Sindri byrja gegn Eyjamönnum

Hólmbert Aron Friðjónsson byrjar gegn Eyjamönnum.
Hólmbert Aron Friðjónsson byrjar gegn Eyjamönnum. Styrmir Kári

Byrjunarliðin úr undanúrslitaleik KR og ÍBV í Borgunarbikarnum eru nú aðgengileg á heimasíðu KSÍ, en Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, gerir nokkrar breytingar á sínu liði.

Sindri Snær Jensson stendur á milli stanganna hjá KR þar sem Stefán Logi Magnússon er meiddur og þá kemur Hólmbert Aron Friðjónsson, Óskar Örn Hauksson, Rasmus Christiansen Gonzalo Balbi, Almarr Ormarsson og Kristinn Jóhannes Magnússon inn í liðið.

Gary Martin, Aron Bjarki Jósepsson, Jónas Guðni Sævarsson, Þorsteinn Már Ragnarsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson fara þá allir á bekkinn.

Jonathan Patrick Barden kemur inn í lið Eyjamann í stað Gunnars Þorsteinssonar, en það er eina breytingin á þeirra liði.

KR: Sindri Snær Jensson (M), Rasmus Christiansen, Gonzalo Balbi, Skúli Jón Friðgeirsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Pálmi Rafn Pálmason, Almarr Ormarsson, Kristinn J. Magnússon, Hólmbert Aron Friðjónsson, Jacob Schoop, Óskar Örn Hauksson.
Varamenn: Hörður Fannar Björgvinsson (M), Grétar S. Sigurðarson, Gary Martin, Jónas Guðni Sævarsson, Þorsteinn Már Ragnarsson, Aron Bjarki Jósepsson, Sören Frederiksen.

ÍBV: Abel Dhaira (M), Tom Even Skogsrud, Hafsteinn Briem, Avni Pepa, Aron Bjarnason, José Enrique Seoane, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Víðir Þorvarðarson, Jonathan P. Barden, Mees Siers, Ian Jeffs.
Varamenn: Guðjón Orri Sigurjónsson (M), Gunnar Þorsteinsson, Jón Ingason, Bjarni Gunnarsson, Devon Már Griffin, Dominic Adams, Gauti Þorvarðarson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert