KA fjarlægist enn drauminn að fara upp

Úr leik Hauka og KA í kvöld.
Úr leik Hauka og KA í kvöld. Eggert Jóhannesson

KA-menn eru að heltast úr lestinni í toppbaráttu 1. deildar karla í knattspyrnu eftir 2:1 tap gegn Haukum þegar liðin mættust í lokaleik 13. umferðarinnar á Ásvöllum í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik voru það Andri Fannar Freysson og Björgvin Stefánsson sem komu Haukum yfir í þeim síðari. Elfar Árni Aðalsteinsson minnkaði muninn fyrir KA í uppbótartíma en það dugði ekki til og 2:1 sigur Hauka staðreynd.

Haukar komust með sigrinum upp í sjöunda sætið þar sem liðið hefur 20 stig. KA er með tveimur stigum meira í fimmta sætinu og er tíu stigum á eftir Víkingi Ólafsvík sem er í öðru sætinu.

Fylgst var með gangi mála í beinni lýsingu hér á mbl.is.

90. Leik lokið.

90. Mark! Staðan er 2:1. Á þriðju mínútu uppbótartíma minnkar Elfar Árni Aðalsteinsson muninn fyrir KA. Er von á dramatík?

80. Mark! Staðan er 2:0. Staðan orðin vænleg fyrir Hauka þar sem Björgvin Stefánsson skorar annað mark þeirra.

68. Mark! Staðan er 1:0. Haukar komast yfir og það er Andri Fannar Freysson sem skorar markið á 68. mínútu. Skömmu áður hafði mark verið dæmt af KA vegna rangstöðu. Það eru sveiflur í þessu á Ásvöllum!

46. Síðari hálfleikur er hafinn.

45. Hálfleikur. Enn markalaust að Ásvöllum.

1. Leikurinn er hafinn.

0. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.

Haukar KA
 BYRJUNARLIÐ
14  Terrance William Dieterich (M)   23  Srdjan Rajkovic  (M)  
Aran Nganpanya     Callum Williams   
Björgvin Stefánsson     Ævar Ingi Jóhannesson    
10  Zlatko Krickic     Halldór Hermann Jónsson    
11  Arnar Aðalgeirsson     Elfar Árni Aðalsteinsson    
13  Andri Fannar Freysson     16  Davíð Rúnar Bjarnason  (F)  
17  Gunnlaugur Fannar Guðmundsson     19  Benjamin James Everson   
20  Daníel Snorri Guðlaugsson     21  Ívar Örn Árnason    
22  Aron Jóhannsson     22  Hrannar Björn Steingrímsson    
23  Jóhann Ingi Guðmundsson     25  Archange Nkumu   
27  Alexander Freyr Sindrason  (F)   29  Josip Serdarusic 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert