Danski varnarmaðurinn Thomas Christensen er farinn frá bikarmeisturum Vals aftur til heimalandsins og hefur gengið til liðs við Lyngby sem leikur í B-deildinni.
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfi Valsmanna, staðfesti það við fotbolta.net í kvöld, en Valsmenn selja Christensen til danska félagsins.
Christensen kom til Vals fyrr í sumar og fór mikinn í hjarta varnarinnar ásamt Orra Sigurði Ómarssyni, en þar sem félagaskiptaglugginn ytra er að lokast varð niðurstaðan sú að selja hann aftur til Danmerkur.