Aron og Alfreð fá hvíld

Ekki er búist við öðru á þessum tímapunkti en að …
Ekki er búist við öðru á þessum tímapunkti en að Aron geti farið fyrir íslenska liðinu gegn Hollandi. mbl.is/Golli

Aron Einar Gunnarsson og Alfreð Finnbogason eiga báðir við meiðsli að stríða en fram kom á blaðamannafundi hjá KSÍ í dag að landsliðsþjálfararnir reikna með því að þeir verði leikfærir gegn Hollandi í undankeppni EM á fimmtudag. 

Að sögn Heimis Hallgrímssonar fékk hann þær upplýsingar að Aron og Alfreð muni báðir fá hvíld um helgina þegar lið þeirra Cardiff og Olympiacos spila í sínum deildarkeppnum. 

Sjúkraþjálfarar liðanna hafa lýst þeirri skoðun sinni að leikmennirnir ættu að vera leikfærir næsta fimmtudag í Amsterdam. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert