Guðmundur samningsbundinn KR

Guðmundur Reynir Gunnarsson í búningi Víkings.
Guðmundur Reynir Gunnarsson í búningi Víkings. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmundur Reynir Gunnarsson er samningsbundinn KR á næsta tímabili en hann lék með Víkingi Ólafsvík í sumar sem í gærkvöldi tryggði sér sæti í Pepsí-deild karla að ári. 

Netmiðillinn Fótbolti.net spurði Guðmund að því í gærkvöldi hvort hann hefði eitthvað leitt hugann að næsta sumri. Hann sagði svo ekki vera en benti á samningsstöðu sína og bætti því við að hann hefði ávallt sagt að ef hann myndi beita sér í efstu deild þá yrði það með KR.

Það verður því að teljast ólíklegt á þessum tímapunkti að Ólsarar haldi bakverðinum sókndjarfa á næsta tímabili en hann hefur verið fyrirliði í sigursælu liði Ólafsvíkinga í 1. deildinni í ár.

Guðmundur Reynir Gunnarsson
Guðmundur Reynir Gunnarsson mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert