Fölskvalaus gleði í klefanum - myndskeið

Gunnleifur Gunnleifsson ásamt Hannes Þór Halldórsson sem spilaði frábærlega í …
Gunnleifur Gunnleifsson ásamt Hannes Þór Halldórsson sem spilaði frábærlega í leiknum í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Gunnleifur Gunnleifsson, varamarkvörður íslenska landsliðsins, birti ansi skemmtilegt myndband á instagram síðu sinni í kvöld.

Myndbandið veitir innsýn í fagnaðarlæti íslenska landsliðsins eftir magnaðan sigur liðsins gegn Hollandi í Amsterdam í kvöld.

Ísland sigraði Holland með einu marki gegn engu og er eftir sigurinn kominn með annan fótinn til Frakklands þar sem lokakeppni Evrópumóts landsliða fer fram á næsta ári.

Leikmenn liðsins sleppa sér eðlilega í gleðinni og syngja og dansa í sigurvímu.

Gunnleifur var með símann á lofti og fangaði skemmtilegt myndband af innilegum fögnuði leikmanna íslenska liðsins.

Myndbandið má sjá hér að neðan.

<div> <div></div> </div>

<a href="https://instagram.com/p/7LuxACjgs2/" target="_top">Vessgú! OMG!!!!🎉🎉🎉</a>

A video posted by Gunnleifur Gunnleifsson (@gulligull1) on Sep 3, 2015 at 2:19pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert