Íslenskar getraunir og erlendar veðmálasíður töldu Hollendinga mun sigurstranglegri í leik Hollands og Íslands sem fram fór í gærkvöld.
<br/><br/>Íslenskir tipparar voru hins vegar ekki á sama máli og tippuðu langflestir á sigur Íslands og höfðu að endingu rétt fyrir sér þegar íslenska liðið tryggði sér sigurinn með vítaspyrnu Gylfa Sigurðssonar.
<span><br/>Leikurinn var þar af leiðandi dýrasti einstaki leikur í sögu Íslenskra getrauna, en aldrei áður hefur svo há upphæð verið greidd út í verðlaunafé til tippara fyrir einn einstakan leik í Lengjunni og greidd var út fyrir leik Hollands og Íslands.</span>