Tvíburabræður til Hannover

Þorri Mar Þórisson í leik með Þór gegn KA í …
Þorri Mar Þórisson í leik með Þór gegn KA í sumar. mbl/Skapti

Tvíburabræðurnir, Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir, æfa með þýska 1. deildarliðinu Hannover 96 næstu tvær vikurnar en þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.

Nökkvi og Þorri, sem eru 16 ára gamlir, gerðu báðir þriggja ára samning við Þór í sumar en þeir urðu bikarmeistarar með 3. flokki félagsins á þessu tímabili.

Þeir munu æfa með unglingaliði Hannover næstu tvær vikurnar en þýska liðið hafnaði í 13. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Þeir hafa ekki langt að sækja hæfileika sína en Þórir Guðmundur Áskelsson, fyrrum leikmaður Þórs og Fram, er faðir þeirra. Hann á að baki 197 leiki í deild og bikar.

Nökkvi Þeyr Þórisson í leik með Þór í sumar.
Nökkvi Þeyr Þórisson í leik með Þór í sumar. mbl/Skapti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert