Jón Daði ekki með gegn Lettum

Jón Daði Böðvarsson hefur spilað mikið í undankeppninni.
Jón Daði Böðvarsson hefur spilað mikið í undankeppninni. mbl.is/Golli

Jón Daði Böðvarsson mun að öllum líkindum ekki taka neinn þátt í leik Íslands og Lettlands í undankeppni EM í knattspyrnu á Laugardalsvelli á morgun.

Þetta sagði Lars Lagerbäck á fréttamannafundi nú í hádeginu. Jón Daði hefur fundið fyrir meiðslum í vikunni og að sögn þjálfarans getur Selfyssingurinn hlaupið á æfingum, en ekki sparkaði í boltann án þess að finna fyrir eymslum.

Jón Daði hefur leikið flesta af leikjum Íslands í undankeppninni, oftast í byrjunarliði. Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson missir einnig af leiknum á morgun vegna leikbanns.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert