Knattspyrnumaðurinn Ingólfur Sigurðsson hefur skrifað undir samning við Fram til næstu tveggja ára og mun því áfram leika í 1. deildinni á næsta keppnistímabili.
Ingólfur skoraði sjö mörk fyrir Víking Ólafsvík í sumar þegar liðið varð 1. deildarmeistari og tryggði sér sæti í Pepsideildinni. Hann er 22 ára gamall og hefur alls leikið 67 leiki í meistaraflokki hér á landi, en hann var áður hjá Val KR, Þrótti og KV og í atvinnumennsku hjá Heerenveen í Hollandi og Lyngby í Danmörku.
Ingólfur er fjórði leikmaðurinn sem gengið hefur í raðir Fram á síðustu vikum. Áður höfðu Atli Fannar Jónsson, Hlynur Atli Magnússon og Brynjar Kristmundsson bæst í hópinn.