Makedónskur leikmaður æfir með FH

FH-ingar eru Íslandsmeistarar.
FH-ingar eru Íslandsmeistarar.

Íslandsmeistarar FH eru með leikmann frá Makedóníu á reynslu hjá sér, en sá heitir Hristijan Denkovski og er 21 árs gamall. Þetta staðfesti Birgir Jóhannsson, framkvæmdastóri FH, við fotbolta.net.

Denkovski þessi var síðast í U21 árs liði Groningen í Hollandi, en hann getur spilað á kantinum sem og framarlega á miðjunni. Hann mu æfa með FH á næstunni og spila með liðinu í Bose-æfingamótinu.

Þá er Senegalinn Amath Andre Dansokho Diedhiou á förum frá liðinu, en hann var á láni hjá Leikni R. og BÍ/Bolungarvík í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert