Fyrrum leikmaður Liverpool lék með KR í kvöld

KR er með fyrrum leikmann Liverpool í sigtinu.
KR er með fyrrum leikmann Liverpool í sigtinu. AFP

Fyrrverandi leikmaður Liverpool lék með KR gegn Breiðabliki í Bose mótinu í knattspyrnu karla í kvöld. Emmanuel Henry Gomis Mendy er 25 ára hægri bakvörður en fotbolti.net greindi frá þessu nú í kvöld.

Leikmaðurinn er frá Senegal en hann var í herbúðum Liverpool á árunum 2008 - 2012. Hann náði ekki að brjótast inn í aðallið Liverpool á þeim tíma og lék með varaliði félagsins.

Síðan hann yfirgaf Bítlaborgina árið 2012 hefur hann leikið með Dinamo Tbilisi frá Georgíu og Daugava Riga frá Lettlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert