Hólmbert skoraði á síðustu stundu

KR lagði Fylki að velli með einu marki gegn engu …
KR lagði Fylki að velli með einu marki gegn engu í kvöld. Eva Björk Ægisdóttir

KR tryggði sér sigurinn með marki í uppbótartíma þegar liðið mætti Fylki í annarri umferð A riðils Reykjavíkurmótsins í meistaraflokki karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld. 

Það var Hólmbert Aron Friðjónsson sem skoraði sigurmark KR, 1:0, þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. 

KR nældi sér þar með í sín fyrstu stig í mótinu, en Fylkir hefur þrjú stig eftir jafn marga leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert