Sviku fé út úr íslenskum íþróttamönnum

Gunnar Heiðar Þorvaldsson með treyju Häcken sumarið 2014.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson með treyju Häcken sumarið 2014. Ljósmynd/bkhacken.se

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Helgi Valur Daníelsson voru í hópi 17 íþróttamanna í Svíþjóð sem urðu fyrir barðinu á sænskum glæpahring þegar þeir léku þar í landi á sínum tíma. Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu.

Glæpamennirnir notuðu auðkenni íþróttamannanna í heimildarleysi og tóku út lán í þeirra nafni. Glæpamennirnir notuðu auðkenni þekktra íþróttamanna sem voru að flytja frá Svíþjóð og einblíndu á íshokkímenn og knattspyrnumenn.

Sænska lögreglan gerði húsleitir á heimili þessara fjársvikara og lagði hendur á um um það bil 400 bankakort, yfir 100 skjöl með fölsuðum persónuupplýsingum, fjölda falsaðra vegabréfa og tugi farsíma.

Átta menn hafa nú verið dæmdir í málinu, en sá er þyngsta dóminn hlaut var dæmdur í fimm ára fangelsi.

„Þegar ég skrifaði undir hjá Häcken frá Konyaspor fékk ég símtal stuttu eftir að ég flutti til Svíþjóðar aftur. Þar var ég spurður að því hvort ég hafi verið að taka út kredit upp á 100 þúsund sænskar í banka þarna. Ég kom af fjöllum en svo var dagsetningin nefnd og ég sagði að þarna hefði ég verið að flytja til Tyrklands," segir Gunnar Heiðar í samtali við Fótbolta.net.

„Þessir aðilar sem voru dæmdir voru að nýta þann tíma sem íþróttamennirnir voru að vinna pappírsvinnu þegar þeir voru að flytja úr landi til þess að taka út lán á þeirra nafni. Það var reynt að fá 1,6 milljónir út úr nafninu mínu. Yfirvöld tilkynntu svo að öllu á mínu nafni varðandi lán og þannig yrði lokað," sagði Gunnar Heiðar enn fremur um atburðarrásina.

„Þeir náðu helling af pening, um 70 þúsund sænskum (milljón íslenskra króna) á mitt nafn," segir Gunnar um afleiðingar af gjörðum glæpamannanna.

„Það voru einhverjir algjörlega „teknir í rassgatið" af þessum köllum. Ég fór ekkert að borga reikninga eftir þá en þeir náðu út einhverjum 60-70 milljónum íslenskra króna. Þetta er risamál og kom eins og sprengja. Þetta var frekar ógnvekjandi á tímabili að vera tengdur inn í svona stóra glæpastarfssemi," sagði Gunnar Heiðar um tilfinninguna að vera fórnarlamb aðgerða glæpamanna.

Sænsku lögreglunni hefur tekist að uppræta þennan glæpahring, en eins og áður sagði fengu átta menn dóma vegna málsins í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert